the coldest human being that you've heard thus far

Saturday, January 28, 2006

By the time you get to read this, I'll probably be dead, but when you left in '97 a part of me went to heaven..

Retard Attempting Poetry?
Nah.. I'm just writing yo. Rough times, aint no sunshine..
Og ef eitthvað kemur einhvern tímann fyrir þá vitiði allavega að ég elska ykkur öll..flest.

Hæ mamma, hæ pabbi, þið vitið að ég elska ykkur
Ekki kenna ykkur um, ekki kenna neinum um
Það ber enginn neina ábyrgð né sök, ég valdi þetta sjálf
Alveg síðan ég man eftir hefur mér fundist ég sem hálf
Ekki heil manneskja heldur í leit að hinum helmingnum
Ég leita hans yfir móðuna miklu, ekki meira af svívirðingum
Né hatri, ekki meiri andúð og ógeð á mér og í minn garð
Ekki velta ykkur uppúr hví, afhverju, ég bara varð
Svona er lífið, nei svona er dauðinn en ég elska ykkur öll
Mér nær, í næsta herbergi og fjær, fram yfir fjærstu fjöll
Ég vil engan særa, ég vil engan græta, ég vona að fjölskyldan,
Fjölskyldan standi saman, elskið hvort annað, munið og ég man
Að þið gáfuð mér líf og lifðuð með mér, ég þakka fyrir
Minningin mun lifa, kærleikur lifir, fjölskylda lifir
Allt lifir nema ég dey, korn í sandinum sem enginn saknar
Dreymi þig fallega því ég verð farin þegar þú vaknar...

Elsku vinir og kunningjar, komið að stundinni þungbæru
Dái ykkur og dey, dáin ég dái ykkur öll mín kæru
Þið völduð mig til að fá smá af ykkar hamingju og hlátri
Og þið voruð við hliðina á mér í óhamingju og gráti
Bökkuðuð mig bæði upp og genguð fram við mína hlið
Buðuð fólki birginn, ávallt var ég í rétti og báðuð mér grið
Stóðuð með mér þegar ég gerði það ekki einu sinni sjálf
En lífið er akur, dauðinn er veiðimaður og við erum bráð
Og stundum fellur eitt okkar í valinn svo hinir læri af reynslunni
gripið af sjúkdómum sem er valur og við verðum að dúfunni
Líf mitt hefði orðið mun tómlegra fyrir margra hluta sakirnar
Ef ykkar hefði ekki notið við svo minnið hvort annað á og ég man
Að þið gáfuð mér líf og lifðuð með mér, ég þakka fyrir
Minningin mun lifa, hamingjan lifir, vináttan lifir
Allt lifir nema ég dey, dropi í ánni sem enginn saknar
Dreymi þig fallega því ég verð farin þegar þú vaknar...

Ég verð að skila kveðju til þeirra sem létuð mig brosa og þjást
Þið eruð þeir sem sköpuðuð umræðuefni, óhamingju og ást
Sumir eitt, sumir annað, sumir tvennt og einhver allt þrennt
Ég hef hitnað ykkar vegna, kólnað, frosið og á mörgum brennt
Allir eru samt minningar og minningar eru góðar, right?
Þið létuð mér líða eins og ég væri flott og eftirsótt og sæt
Sumum man ég varla eftir og aðrir viku ekki úr huga mér
Sama hvar ég enda eftir þetta líf ég mun aldrei gleyma þér
Það var einn, þú sem þvingaðir mig, en ég ber engan kala
Og annar sem notaði mig mig en ég skil þú hafir valið hana
Verstir eru þeir og sá sem kvöddu án orða því þótt orð geti sært
Er þögnin enn verri en verstu orðin, ég var óreynd en ég hef lært
Að þú særir engann svona mikið sem þú unnir eins og þú segir
Og ef þér er sama um það og mig þá er þér sama þótt ég deyi
Að þið gáfuð mér líf og lifðuð með mér, ég þakka fyrir
Minningin mun lifa, lostinn lifir, ástin að eilífu lifir
Allt lifir nema ég dey, tvö augu í fjöldanum sem enginn saknar
Dreymi þig fallega því ég verð farin þegar þú vaknar...

Monday, January 23, 2006

Like the toy balloon that's filled with as much air as it can take, one more puff of air and that balloon has got to burst

Yesh people. Ég veit ekki afhverju ég er hér, ætti að sparka í rassinn á sjálfri mér fyrir það. En svona er það þegar maður er að reyna að gera allt annað en að læra..
Reyndar ekki mér að kenna, Tóti var að stinga mig af til að fara að skutla kærustunni.. Girls, aint nuttin but trouble, huh.

Dagurinn er búinn að vera ágætur. Ég reyndar hóf daginn á því að borða hálft kíló af skyri í félagsfræði og tveimur tímum seinna þegar ég fór á klósetið áttaði ég mig á því að ég hafði rekið skeiðina í hárið á mér.. Og það leit frekar verulega illa út. "ehh, þetta hvíta í toppnum á mér? já þetta er skyr. í alvörunni."
Seinna brilleraði ég þegar ég dottaði í heimspeki og þið vitið hvernig maður kippist stundum harkalega við þegar maður er svona á milli svefns og vöku..yep, you got it. Frekar kjánalegt.

Helgin var mest vinna og aðeins lærdómur. Kíkti reyndar út á föstudagskvöldið þar sem ég var á gestalista á Breakbeat kvöld á Nasa og bauð Andra með mér í tilefni dagsins, það var mjög nice. Shotouts fá Sóley mín fyrir að drífa sig á djammið, Vigdís fyrir að vera drunk og hress og Valli fyrir að rífa sig úr að ofan..haha. Ég sá reyndar eftir að hafa farið edrú, ég vildi að ég hefði verið full, mig langaði svo að dansa.. Það var svo sjúk stemming og tónlist alveg bumpin. Þarf nú vanalega alls ekki að vera drukkin til þess en æ þessi tónlist.. I'm not so sure about it. Mjög nice, dont get me wrong en það er samt svona eitthvað sem heldur aftur að mér edrú. Svo var farið í göngutúr um bæinn og það var lovely.

Sá um daginn í Sirkus blaðinu eða einhverjum þannig pappír þar sem fólk var spurt um lögin sem færu hvað mest í taugarnar á því. Ég veit ekki, mér detta helvíti mörg í hug en ætli þau sem standi ekki hvað efst upp úr eða eru allavega hvað ferskust í minninu séu helvítans "maríahú, maríha" lagið sem er einhver sá mesti hroðbjóður sem eyru mín hafa þurft að þola og svo "crazy bastard" með Quarashi og 'strákunum'. Fleiri hugmyndir?
Sirkus blaðið finnst mér reyndar hálfpartinn vera að kúka á sig, mér fannst það mjög fínt til að byrja með en ég veit ekki.. Þeir eru svolítið eins og gaur sem er svo mikið að reyna að vera cool að hann verður bara rosalega un-cool fyrir vikið. Ágætis lestur í því samt yfirleitt, að einhverju leiti.
Ætlaði að blogga líka um kennarana mína en ég ætla í staðinn bara að fara að hypja mig heim, borða og læra. Peace!

Sunday, January 15, 2006

Snap my fingers, make you mine, if not, I'll snap a second time.. After that, I guarantee, you will be standing next to me

Jæja jæja..
Dagurinn var ágætis vinnudagur, var fyrst í Maraþon og hélt svo yfir í Bláa. Ótrúlegt hvað fólk getur orðið klikkað á útsölum, ekki allir en það eru sérstakar útsölutýpur and loooord, are they crazy.
Lenti reyndar á einni konu sem ég var svolítið lengi að afgreiða sem er ekki frásögu færandi nema það að hún talaði eiginlega allan tímann á innsoginu. Ég skil alveg þegar fólk segir "já" og "nei" og þannig hluti á innsoginu en commooon! Svo þegar hún var að borga sundfatnaðinn sem hún var að kaupa kom kallinn hennar, að deyja úr leiðindum. "Okey, ekki drepa mig en ég hef tekið mér styttri tíma í að kaupa bíl" haha.
Í gær kíkti ég líka í vinnupartý hjá Parlogis. Þau eru alltaf hress. Og steikt, flest hver að minnsta kosti. Steini er náttúrulega bara lifandi sönnun þess að það eru engin takmörk fyrir því hversu skrítinn er hægt að vera.
Úlla: "að bölva snjónum" Steini: Hey.. Það er betra að hafa snjó heldur en sjó.
Steini: Hey common, við björguðum lífi þínu
Gummi: Aðal trickið er að ná í stelpu áður en hún kemst að því hvað þú ert mikill aumingi. Steini: (Drafandi af drykkju) já ég er algjört skítseiði..
Hmm, kannski ekkert fyndið svona. En trúðu mér bara þegar ég segi að það hafi verið það. Svo mætti Siggi Bahamas og stútaði bjórdrykkjukeppni. Ætti að vera skylda í hverju partýi.

Annars er skólinn að ganga .. tjah.. eh, hann gengur að minnsta kosti.
Heimspeki er snilld, ég elska þetta fag.
Örstuttar hugleiðingar sem ég skrifaði eftir síðasta tíma, svolítið ruglingslegar kannski, var skrifað alveg jafnóðum og það var hugsað.

Stundum þarf maður að setjast niður og hugsa ,,hvað er það, sem gerir mig hamingjusama” og bera sig eftir því. Stundum kemur upp sú staða þegar sama fyrirbærið og gerir þig hamingjusaman veldur óhamingju. Á maður þá að bíða eftir að önnur tilfinningin yfirgnæfi hina eða að finna eitthvað annað sem veitir skilyrðislausa hamingju? Maður spyr sig...

Tónlist gerir mig glaða, hún lætur mér líða vel og mótar í raun margar tilfinningar. Eins yndislegur hlutur og hún er getur hún lika gert mig sorgmædda, bitra, pirraða og leiða. Ætli það mætti ekki segja að tónlist stjórnaði lífi mínu. En hún ein og sér gerir mig ekki hamingjusama. Hún svæfir mig og vekur, hún lætur mig brosa og tárast, hún kemur mér út á lífið og hún á sök á því að ég hangi heima. Eins og vinur, kærasti eða ættingi. Hún hefur það allt nema hún veitir mér enga líkamlega væntumþykju, hún hefur ekki áhyggjur af mér og hún elskar mig ekki. It’s a one-way-love. Óendurgoldin og án skuldbindinga.

Your love is... by ChibiMarronchan
Your name is...
Your kiss is...erotic
Your hugs are...gentle
Your eyes...twinkle in the moonlight
Your touch is...awakening my heart
Your smell is...beautiful
Your smile is...encouraging
Your love is...one of a kind
Quiz created with MemeGen!


Jáh.. Það er magnað hvað nafnið eitt getur sagt okkur mikið haaaa.
Æ whatever..hafið það gott.

Tuesday, January 10, 2006

So if you're still interested you should come get at me, cause I'm tired of getting shot down, put down and dissed..

.. I wanna be picked up, held tight and kissed ..

FÁ er ekki skemmtilegur. En þetta er samt fyrsti skólinn þar sem kennarnir eru með verri mætingu en ég, mæta alltooof seint og skrópa jafnvel! Skondið nokk.
Ég er að byrja í Brynju-dansi á morgun..woopwoop. Hún er búin að lofa blazin Sean Paul choreografíu og það er bara eins gott að hún standi við það.. Svo er ég líka byrjuð í magadansi. yesh yesh.

En hey, ég er búin að bíða með þetta í word síðan fyrir löngu.. Ég var nefnilega löngu búin þegar ég bloggaði síðast. hoho..

Jói:
Grrreat guy, besti vinur minn, gotta be something special about you! Þú ert með svo mikinn aulahúmor að jackass gaurarnir fá örugglega gæsahúð í kringum þig og bara..haha. ég veit ekki hversu oft fólk hefur haldið að við værum saman, einhverra hluta, ég veit ekki afhverju. Þú nærð mér náttúrulega upp að öxlum eða e-ð ..heheh. its all luuuv ;)

Bara eitthvað með Loop troop held ég. Og Forgotten lores. Helvítans exorcist myndin þarna sem þú dróst mig á og ég skiptist á að vera að fá hjartaáfall og að vera bored as hell. Þú fær aaaldrei aftur að ráða myndinni! Og Pirates of the carribean bara.

Subway, pizza hut og bara whatever basicly.. We are always eating yo! Haha

Sko.. mig rámar alveg í þig eitthvað back en fyrsta ljósa minningin sem ég á er ekki fyrr en um verslunarmannahelgina ‘04! Og síðan þá höfum við líka verið like “this”.

Uuu.. Ef það væri til eitthvað dýr sem flissar meira en híena, étur eins og hestur án þess að fitna, er meira tölvuleikjanörd en hamsturinn hans bill gates og dýrkar mig meira en hundurinn minn þá væri þessi spurning ekkert erfið! ;)

Hvenær ætlaru að flytja í bæinn!

-ljóshærður hundur- “huhuhu, er þetta kærastan þín” Æ það er heavy mikið af aulahúmor sem ég einhvern veginn man ekkert af núna.. Its all in the moment!

Kalli:
Vinnufélagi úr Maraþon. Magnað hvað þú getur talað, ég hélt að aðeins einstaka kvenmaður hefði hæfileika til að tala svona mikið..um ekki neitt. Ennn well það stytti svo sem dagana sem voru lengi að líða.

Bara eitthvað óperudót eða eitthvað..

Skyrdesert. Og svo þú og Gunni með fjárans bláberjaskyrið.

Man bara að þú byrjaðir að tala við mig og úllu eða e-n einhvern tímann þegar ég kom í Maraþon ég var bara “who tha fuck is this dude and why is he talking to me” hehe.

Páfagauk. Eða talking walking séð og heyrt..haha.

Hvað ertu með á tímann? Haha..nah, i dont wanna know, foreal. Hrmpf

Hmm.. 16 ára kærastan þín, SLAP með því sem hendi er næst og *3 puttar upp* .. meikar samt alveg jafnt sence fyrir alla í Maraþon reyndar.

Dagný:
Mágkona mín, hress á kantinum, sérstaklega í glasi.. Ein besta vinkona mín og stendur mér mjög nærri. Ég og Guðjón gerum hana geðveika með hvernig við göngum um but she still loves us..how could she not :D

Hmm. Footballers wives þættirnir, klárlega. Eiginlega líka americas next top model og mile high. Svo bara eitthvað funky gamalt rapp og popp hehe. Michal Jackson. Og Grease!

Hmm, ég veit ekki, you neva cook woman. Hehe. Ógeðs túnfisklykt kannski. Og jú, graskersfræin.

Ég á enga eina fyrstu ljósa minningu.. Ég man bara eftir að hafa hitt þig nokkrum sinnum, man eeekkert hvenær sú fyrsta er. Man eftir einhverju fyrir austan, litlu ættarmóti þar sem Anton var að gera þig geðveika en held ég hafi alveg hitt þig nokkrum sinnum fyrir það.

Köttur, no doubt. Eða tiger.

öööööööööööööööööööööööööö

Uppkomna dóttir þín.. 19 að verða 29, 29 að verða 19. Hehe :) and more

Ragga:
Fallega, góða, dökkhærða, ástfangna, sometimes quick to judge&quick to get drunk (haha), tilfinningaríka stelpan þín! Einhver knúsulegasta manneskja sem ég veit um, somehow get ég ekki hætt að knúsa þig þegar við hittumst hehe. Hair, make up and clothes always perfect and body (booty) movin like nothing else!

Ég þarf nú varla að svara þessu.. Hey mom, can I have some money? The ice cream man is coming!

Þú ert djúsí jarðaberjabragð, klárlega ;)

Raekwon tónleikarnir og “”””eftirpartýið”””” eftir þá.

Labrador held ég bara. Ert nú svolítið ‘snobbhundur á silkipúða’ í þér lika hehe.

Hvenær koma börnin.. Hehehe neinei.. Ég bara man ekki eftir neinu..

Sko þessir gaurar vilja bara eitt..dont you even go there!

Soffía:
Svo ljóshærð, svo sæt, svo nice :) in nice ..brrrmbrrrmtssssj .. Vilt öllum vel, átt það til að vera dramaqueen og þú ert pink as hell! Veit ekki um meiri antí drugs and everything, ættir að fara að vinna við forvarnarstarf eða some.. Verður crazy þegar þú drekkur áfengi og kaffi (in no special order..) Dope rapper úr mad hiphop fjölskyldu..vertu svo bara dugleg að semja og taka upp í Nice!

Hmm, alveg ýmislegt. Heat með fitty, klárlega og Kanye West – all falls down. Líka fullt af myndum. Bomb the system, wildstyle og bara loooots af myndum sem við höfum horft á saman. Buena vista social club :)

Ís, no diggety, no doubt.. Og american pancakes.

Þegar við hittumst fyrst, bjórkvöld í þjóðleikhúskjallaranum eftir einhverja gettu betur keppni. Eða í rauninni þegar þú og Ragga komuð og náðuð í mig and you were like “hey whatsup” and i was like “chillin, howabout you” and you were like “yeahhh, me too”. Pretty much eins og enn þann dag í dag. ;)

Einhvern svona hvítan mjúkan hund með bleika slaufu. Og svo minna Cavalier mig auðvitað á þig.

Whatsup?

Kitchenbitch! Gæðapopp! Fork! Taka bók úr hillu-opna-loka-setja í hillu. Og þetta er bara frá einum degi! I could prolly do this for eeever hehe.

Elísabet:
Hresssss stelpa sem er alltaf brosandi æðislegu brosi, altso þegar hún er ekki hlæjandi. Ballerína, þykir víst svaka góð sem slík :) og algjöööör ljóska haha. Á eftir að verða frægur fatahönnuður einn daginn, það er ég viss um! Og þú fokkaðir mér algjörlega upp með að commenta haha.

Hmm.. Jae Millz lagið! Því við dönsum svo gott sem hlið við hlið.

Sugah..? Sykursæt :p

Uuuh, man ekki alveg en það var bókað einhvern tímann niðrí bæ.

Eitthvað loðið og sætt ;)

Hvenær má ég búast við að sjá EE í búðum?!

Bíddu.. þegar þú segir flóðhestar þá meinarruuuu...?

Sóley: (þú reyndar baðst ekkert um þetta but still hehe)
Rokkarinn minn, töff hár og fatastíll, big breasts (hoho) algjör vitleysingur með áfengi og truly fá fyllerí skemmtilegri heldur en með þér! :) Höfum líka átt svo góð chill saman, það er hægt að gera allt með þér. Shareum svipuðum pælingum og álitum á mörgum hlutum. Höfum líka hist allt of lítið upp á síðkastið, við verðum að bæta úr því gurl..

Hmm.. útvarpsþátturinn hans freysa allavega.. hehe. No doubt about that! The streets líka eitthvað. Og bara eitthvað rokk.. its all the same to me ;) haha

Lucky Charms..borðað upp úr stórri gulri skál. Humarsúpa, humarrrrrr..hátíð!

Jarðfræðitímarnir! Klárlega. Við og agnes, alltaf fremst.. því við mættum svo seint. Heh

Öll dýr sem horfa á þig með svip sem segir “..and you got a problem with that?”

Ertu ekki að fara að standa þíg í skólanum núna! :) i know you will (komandi frá mér haha)

Bráðnaður krókódíll, drullupollur, gaurar hlaupandi á eftir okkur:“sóley sóley, ekki gráta”, frosna special k-ið mitt í flugeldakompunni, rútan til keflavíkur, rútan til hafnar and mooore!

Stebbi:
Þú ert góður gaur sem er alltaf gaman að spjalla við, tónlistarlover af hæstu gráðu. Býr til geðveika takta, svolítið hrokafullur stundum.. Sem er ágætt og þú veist það! Treystir engu sem yfirvöld segja og það er bara ágætt líka.

Tjaa.. þín tónlist auðvitað. Og svo eitthvað svona mf doom typ’a shit .. Og drum’n’base og þannig.. veit ekkert muninn á ‘þeim’ tónlistarstefnum, þér til mikillar hamingju eflaust..

Hehe, bjór. Maður hittir þig nú bara aðallega á þannig dögum.

Það var náttúrulega þetta í bíóinu, haaaaa. Hehe. Annars eru það Supernatural tónleikarnir þegar við vorum eitthvað að spjalla.

Ég veit það ekki.. En kötturinn þinn er sætur. Og hann minnir mig auðvitað á þig því þú átt hann, right? Svo ég segi kötturinn þinn.

Viltu árita eintakið mitt?

Það er eitthvað no doubt .. kem því bara ekki upp í hausinn á mér.. Fill me in! Eða well, reyndar skógurinn á Akureyri.. En það er eitthvað sem þú ert vonandi bara búinn að gleyma. Hehe.

Ogsvona, því hann Gunnar er Frekja með stóru F-i.

Gaur sem finnst gaman að fokka í fólki.. Alltof gaman eiginlega. Hefur svarað í símann minn og byrjað að stynja, þóst vera þroskaheftur að borða ís í kringlunni og ég veit ekki hvað.. Var besti vinur minn en svona er þetta þegar fólk býr út á landi.. Eða reyndar bjó. Hann er með einhverja náðargáfu að verða góður í öllu, bölvaður. Ég er þrjósk en hell, ég held ég toppi hann varla. Getur röflað alla til helvítis og til baka. Og auðvitað, upphafsmaður hins íslenska "forheadslamming"klúbbs..

Hmm. Afhverju man ég ekki eftir neinu? Crash jú.. thats about it.. Svo reyndar lil flip en ekki af því að þú fílir hann heldur útaf Inga og Hauk..shit. Og auðvitað "tveir þrjátíu, ég negli þessa píu" Get low remixið.. ;)

Ég segi pass, þú hefur örugglega aldrei gefið mér neitt að borða.

Þegar ég fór með þér og Völu á MH norðurkjallaradót. Svo varstu náttúrulega búinn að vera að fokkast í mér áður í gegnum síma og tölvu.

Eitthvað..annoying. Hehe.

Ætlaru að verja mig fyrir rétti ef ég þarf á því að halda? :D

Þegar mamma þín hélt að þú værir í rugli útaf mér.. Þegar þú varst alltaf að pína mig.. "ohhhhhhh, Aldís ekki hætta þetta er svo gott" (Mér var by the way EKKI trúað þegar ég sagði að þú hefðir verið að djóka..) og svo kannski einna nýjast "Hahahaha, ertu í KJÓL? Váá ég verð að hitta þig, ég get ekki ímyndað mér það" pifh..



_________________________________________________________________

Já, þar hafiði það.
Ótrúlegt, jafn fyndið og lífið er hvað maður á erfitt með að hlæja að því stundum.. Þá á maður að hlusta á daylight til að minna sig á að lífið er ekki tík, lífið er falleg kona.. right? guess so. Fyrst hann segir það.

Friday, January 06, 2006

The time is now, the place is here, hip-hop's making a turn for the better this year!!

Word tha fuck up.

Sko, ég er eiginlega búin með dótið fyrir neðan en ég ætla að pósta öllu saman svo yall just gonna have to wait.
Og þið getið enn hollað en nú fer hver að verða síðastur! (svona í anda útsalnanna)

Annars er ég bara að skrifa hér til að sníkja bækur.
Ef einhver á:

Fast Track to CAE
The Birthday party
To kill a mockingbird
Kenningar og samfélagið - Garðar Gísla
Samdrykkjan - Platon
Íslenskar bókmenntir 1550-1900 - Kristinn Kristjáns
Tödlicher Schnee

Þá bara láttu mig vita og gefðu mér ódýrt :D
Mátt líka lána mér John Steinbeck - Grapes of wrath og íslandsklukkuna..

Tuesday, January 03, 2006

Are you somewhere feeling lonely or is someone loving you? Tell me how to win your heart, for I haven't got a clue..

Hello, is it me you're looking for?

Gleðilegt nýtt ár, takk fyrir það gamla. Nema auðvitað þið sem mér finnast leiðinleg.
Áramótin voru alveg hreint ágæt, góður matur, hann bróðir minn ætti að opna veitingastað hreinlega. Drakk svo hér þangað til mér var leiðbeint niður á prik því það var víst ekkert af fólki. Ég fór niður á prik og svei mér þá.. Það var rétt. Sem er mjöög gott mál.
Djammaði svo bara þar, einhvern veginn leið kvöldið bara áður en ég fattaði það. Fór svo bara tiltölulega snemma heim. Og svaf eins og engill..
Vaknaði svo daginn eftir (foreal) og chillaði fram undir kvöld og hitti svo Soffíu mína aðeins.. En hún er farin til Nice, bölvuð.

Stundum get ég alveg orðið forviða á því hversu tregt sumt fólk er.
Reyndar get ég líka orðið það á hversu illa innrætt, frekt og ókurteist. Hitt datt bara upp í hugann á mér því það hefur nokkrum sinnum poppað upp í hugann á mér upp á síðkastið. (vá hvað það eru mörg "upp" í þessari setningu)
Ég hlakka til að byrja í dansinum! Og magadansi líka. Boogie, checkaðu magadanssíðuna og segðu mér hvað ég á að fara í ;p

This thing right here.. Og það er bannað að biðja mig um að gera ef ég hef hitt þig tvisvar eða eitthvað..

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.

2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.

3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.

4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.

5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á.

6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.

7. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sence fyrir mig og þig.

Ég verð örugglega heavy léleg í þessu og segi "pass" við helmingnum. En still.. give it a try:) So holla! commentaðu fyrir neðan og ég segi sannleikann um þig eins og ég kann hann best.