the coldest human being that you've heard thus far

Saturday, February 03, 2007

Stay with me, and together we will live out this dream

Heyheyhey..

Þið hljótið nú að fara að gefast upp á mér, riight?

Mér finnst ég aldrei orðið hafa neitt að segja hérna.. Mig langar alltaf reyndar að blogga um köttinn, hann er svo fokkin uppátækjasamur að það er djók!
Hey common ég læt það bara eftir mér..
Höskuldur eeelskar eyrnapinna. Nýja eða notaða - he dont curr. Hann týnir þá uppúr ruslinu inná baði ef ekkert annað kemur til greina. Safnar þeim svo saman inní skáp sem við skiljum alltaf eftir smá rifu á því hann elskar að fara inní hann. Svo er hann farinn að leika sér að því að loka skápnum.. Og þá verður hann alveg brjálaður því hann getur ekki opnað aftur og hans precious eyrnapinnar eru lokaðir inni..Svo hann reynir að veiða þá með loppunni undir skáphurðina. Haha.
Hann elskar líka að dreifa klósetpappír út um allt og um daginn var hann meira að segja búinn að hengja pappír á skápana! Við vitum ekki enn hvernig hann fór að því..
Baðherbergið er HANS herbergi, ef maður eyðir of miklum tíma þar í einu, t.d. ef maður fer í sturtu þá bíður hann madd móðgaður fyrir utan, skýst inn og tekur einn hring.. bara til að checka hvort það sé ekki allt í orden.
Ég geymi fleiri sögur þangað til síðar, hann er svo fokkin ruglaður!

Annars er það helst að frétta að ég er að flytja uppí Árbæinn for good. Very nice. Svo ef þið ætlið að senda mér póst eða eitthvað.. Uh, notið þá bara emailið mitt. En bara svo þið vitið það.
Árbærinn maður.. hvað er ég að pæla.
hoho

http://www.deiglan.com/index.php?itemid=10865
Shiit, að ég hafi misst af þessu.. Eruði að grínast? Ætli Pétur Blöndal hafi verið gestafyrirlesari? Svolítið eins og að fara á ráðstefnu um innflytjendamál.. Hosted by Hitler.

Annars er það bara helst að frétta að ég er fáránlega ástfangin..and lovin it! Víííí..eins og tölvan.

3 Comments:

  • Eyrnapinnar eru konfekt á fleiri heimilinum skal ég segja þér, nýjir, notaðir, með augnháralit eða án!! Þeir eru týndir upp úr ruslinu innan um annað góðgæti sem leynist þar eða sóttir upp í hillu. Svo er bómullinn nagaður af og plastið skilið eftir fyrir þjónustufólkið að týna upp!! Baðvaskurinn er með betri beddum á bænum og öll skúmaskot, skápar, undir rúmi, ofan í skúffum nú eða á bakvið ryksuguna eru bestu staðir í heimi :)
    Kisinn þinn er alveg eðlilegur - þú þarft engar áhyggjur að hafa!
    Ég get líka lánað þér Depil í dag eða svo til að kenna honum Höskuldi að opna skápinn - galdurinn er að slá nógu fast í hurðina og ná að setja loppuna á milli í endurkastinu... aha - it works!

    By the way... Árbærinn er laaangbestur ;)

    By Anonymous Anonymous, at 3:50 AM  

  • Hahaha...Kasper er nákvæmlega eins. Hann elskar að tjúva á þessu!

    By Anonymous Anonymous, at 3:09 PM  

  • Haha. Víí eins og tölvan? Hehe, ég gefst seint upp á þér knucklehead :) mwuah!

    -biggedíbounceboogiedownbrynja

    By Anonymous Anonymous, at 4:31 AM  

Post a Comment

<< Home