the coldest human being that you've heard thus far

Tuesday, April 25, 2006

And all I can taste is this moment and all I can breathe is your life. Cus sooner or later it's over, I just don't want to miss you tonight

And I don't want the world to see me, cause I don't think that they'd understand.. When everything's made to be broken, I just want you to know who I am..

Það voru páskar..og það var djammað.
Ekki dottið í það reyndar, en partíað.
Ég er orðin glötuð í drykkjunni. En það er svo sem ágætt.. Sparar mér pening og fólki leiðindi. Ehe?

Soffía kíkti á frónið, öllum til til undrunar.. Vissi enginn af því nema mamma hennar og hún skemmti sér við að hræða líftóruna úr fólki. Ég náttúrulega var samt mjög cool á því.. Það þarf nú meira en eina Soffíu til að láta mig missa andlitið.

Svo kíkti ég út á land, það var svo sem ágætt.. Knúsaði Perlu aðeins og lék mér á fjórhjólinu. Stoppaði samt ekkert lengi. Shit svo er litli bróðir minn að fara að fermast í vor (eða sumar eiginlega) .. I feel so old.
Hann gerði einhvern góðan deal við djöfulinn (eða mömmu) því litla krúttið fær að fermast í gallabuxum.. Bölvaður. Ég fór samt og keypti gallabuxur handa honum og finn líka skó og e-ð. Honum langaði að fermast með bindi sem á stendur "anti kristur" en við ráðlögðum honum frá því. I luv my bro.

Hmm.. Okey svo bara svona það sem hefur verið í gangi lately. Sennilega leiðinleg lesning.

- Ég kíkti á djammið með Sophie og Elísabet á miðvikudagskvöldi og við rústuðum Prikinu. Ég og Elísabet vorum bara dansandi og Soffía var .. doing something else. Með digital beltið sitt. Ég kynntist skemmtilegum gaur og við fórum að gera crib walkið.. Svona eins og pláss er fyrir á prikinu.
- Sunnudagskvöld, svipað og fyrir ofan, sama fólk, sami staður.. Ég var að deyja úr verkjum og sennilega þess vegna man ég ekki eftir neinu skemmtilegu. humm. Fill me in.
- Miðvikudagskvöld, fór á djammið með dansistelpunum, úr Brynjudansi. Það var fresh, nánar um það bara hér .. Brynja orðar það best. Heheh.

island og klubbamenningin, nytt slogan:
"ekki einu sinni reeeeyyyna ad dansa,muhfukka!"


- Svo átti ég lovely kvöld með Heiðu og litlu stúlkunum hennar tveimur.. Eða eini hennar og annari eiginlega hennar. :) Elduðum og chilluðum fram eftir kvöldi. It was nice mang.
- Svo átti ég eitt not so very lovely kvöld með Gunna og Skara ofl hehe.. Pöbbarölt basicly, fyllerí, slagsmál og veeesen. Nice huh.

Hmm.. Er þetta ekki bara gott? Nei en, hey it's something.

Ohjá, er Ísland goin crazy með allar þessar "fegurðarsamkeppnir"? The newest thing, Ungfrú Ísland keppnin verður fokkin reality TV .. Mikið vona ég að það verði ekki jafn fyndið og Bikini keppnin, lord, þær geta ekki verið að taka sjálfa sig alvarlega..
Og Pravda Prinsessan ?? Hvað verður næst? Sólon Sluttið og Hverfis-Hóran?
Farið til læknis og látið líta á hausinn á ykkur.. Foreal!

Friday, April 07, 2006

Foolish pride is all that I have left, so let me hide the tears and the sadness you gave me

Yeah!
Viku dauðans er lokið og páskafríið hafið!
Í kvöld eru Original Melody útgáfutónleikar, það verður pottþétt goodshit.

Ég er farin að halda að það sé einhver óútskýrð orka í kringum mig. Öll raftæki sem ég á eyðileggjast! Tölvan mín er í hassi, það er ekki hægt að hlaða hana lengur nema með mjög mikilli fyrirhöfn.. Og ég er ekki frá því að það sé að verða ómögulegt.
Geislaspilarinn minn er andsetinn, hann drepur á sér þegar sér hentar. Og það fyndna er að það tengist því eitthvað hversu nálægt honum ég er. Ef ég er of nálægt þá spilar hann varla hálft lag og svo ekki söguna meir fyrr en ég ýti aftur á play. Ef ég er í fjarska þá spilar hann alveg eins og nýr..
Þetta reyndar gerðist um daginn, fyrir áramót og þá fór ég með hann í viðgerð og lagararnir sögðust bara hafa hreinsað hann og þá var hann alveg cool í smá tíma. Svo byrjaði þetta aftur. Þarf ég að fara með hann aftur í hreinsun? Það er ekki eins og það geti verið mikil óhreinindi þarna ofan í! Ég set geisladiska þarna, hell. Það er ekki eins og ég noti þetta sem kattasandskassa fyrir köttinn minn.. If I had a cat.

Fyndið hvernig maður fær æði fyrir hlutum. Sérstaklega mat. Ég er búin að fara upp á síðkastið m.a. í gegnum ballerina kex, tekex með camembert, ab mjólk og múslí en the newest shit er ristað brauð með berjasultu. En það er smá vesen.. Ég verð svo fáránlega berjablá! Hvernig í fjandanum getur maður orðið berjablár af sultu? Ég get ekki borðað eina brauðsneið og þá get ég ekki látið sjá mig í hálfan sólarhring því ég lít út eins og Amsterdam hóra með fjólubláan varalit! Bahhh.

Bad.
Jæja.. Ouuuut.