the coldest human being that you've heard thus far

Monday, November 28, 2005

The L is for the lies that bitch is telling her husband, the O is for the other motherfucker that she's fucking ..

Why go up there when people are dying to get down here?
Brilljant setning.. Og Tim Burton's Corpse Bride er brilljant!
Þetta er ss úr myndinni.. Mæli með henni. Ég og Jói fórum hress á hana, vorum ein í salnum þannig að stemmningin var eiginlega meira eins og við værum heima að horfa á video.. með mjög stórt sjónvarp kannski.

Annars er ég að fara að byrja að nota síma aftur á morgun eftir 2 pretty símalausar vikur. Þannig að þegar þið sjáið þetta endilega sendið mér sms með nafninu ykkar.. Við leggjum af stað frá botninum. Shit, þarf ég að venjast þessu helvíti aftur..

Hvað kom fyrir Austó! Ég hata þetta átak gegn graffi. Ég segi að við förum í graffherferð. Einn dagur þar sem allir hiphopparar og aðrir sem aðhyllast streetart dragi upp brúsa og penna og láti til skarar skríða á veggina.. BOMB THE SYSTEM! Bara að ákveða dag..

Ég var að vinna double shifts alla helgina og djammaði ekki neitt. Ég er ömurleg. Ég óttast að Dagný fari að svipta mig sjálfræði og hella ofan í mig áfengi..

Jæja. Já. Gott.

Tuesday, November 22, 2005

Waitin' for that victorious feelin' wanted by all of us..

Hmm.. it's been a while.
Innflutningsparty hjá Stebba um daginn, það var nice. Ég og Stebbi bara chillandi eiginlega allan tímann að tala um tónlist og hlusta á tónlist.. Fór svo á Gaukinn og hitti Röggu og eiginmanninn..to be. ;-* Og hann Gunna minn og fleiri.. Átti að vera cool dj frá Denmark sem hefði orðið mjög gott en þetta var eitthvað skrítið.. Svo held að gaurarnir í 2raw 2real hafi verið að spila, allavega hvort sem þetta voru þeir eða ekki, meeen do these guys know how to kill a party .. Mér er skítsama hversu langt show þið getið haft, reynið frekar að hafa það gott show! bitches n hoes.. Fór svo að rölta með Gunna og enduðum bara aftur hjá Stebba. Stoppaði stutt þar og rölti svo bara heim í fáháránlegri rigningu og steig inn um dyrnar eins og hundur af sundi dreginn. En það var hressandi.
Síðasti föstudagur var líka goodstuff, ég ætlaði ekki að gera jackshit, var bara chillandi að mála herbergið mitt.. Svo hringir Ragga og segir mér að drulla mér að hafa mig til því við ætlum á Prikið í tilefni Blauts malbiks (til hamingju hiphophausar með það) eftir klukkutíma.. Ég bara jájá, ég sé til.. Þarf að klára að mála, fara í sturtu og aaallan pakkann. Svo allavega endaði það þannig að Ragga röflaði mig niður á Prikið (she got lucky, vanalega hefði ég sko ekki látið mig, ég hef smá issue með að láta fólk segja mér fyrir verkum) Ég allavega hafði mig til á mettíma og fór niður á Prik.. Og lenti að sjálfsögðu í skilríkjaveseni.. Cuz I dont have any! Og ég náttúrulega enn án síma í þokkabót svo ég var sníkjandi símtöl fyrir utan prikið.. Lét Röggu vita, hún sendi karlinn út með sín skilríki. Heavy smooth - hann rétti mér símann sinn og lét skilríkin með honum. Ég þóttist hringja "ómæægood, hey skilríkin mín eru í bílnum nenniru að snúa við" ..rölti svo í burtu og kom aftur með ökuskírteinið hennar Röggu. Gaurinn ekki aalveg að kaupa það og hleypti mér ekki inn.. Svo eftir smá viðleitni hjá Danna og mjög ósannfærandi röfl í Röggu (mér finnst magnað að gaurinn hafi haft okkur 2 hlið við hlið, haldið á skilríkjunum og ekki fattað að þetta væri Ragga..hehe) komst ég inn..
Inni var gott djamm, mér hefur örugglega aldrei liðið svona vel á Prikinu, það var ekki troðið eins og fylltur kalkúnn sem var góð tilfinning! Nóg fólk en ekki of mikið. Seinna um kvöldið fórum við svo á Celtic Cross að sjá Katrínu syngja, she's so gooddamn nice mang .. Notuðum mjög smooth skilríkja trick þar aftur, hahah.. Ég nenni ekki að skrifa það líka samt. Ég allavega er búin að komast að því að ég lít mad barnalega út og allir DJ's hata mig.. Ohwell.
Kom svo heim um hálf 5, vaskaði upp og fór aðra umferð yfir ofninn. Er ég einn öflugur kvenmaður eða er ég einn öflugur kvenmaður..

Allavega.

Haha.. Er búin að vera að fara í gegnum draslið mitt í tilefni þess að vera að flytja mig um herbergi. Shit hvað hef ég fundið?
Viðurkenningarskjal fyrir að vera nörd. Frímerkjasafn, what? (styður allavega skjalið..) shitload af prófum með fáránlega háum einkunnum.. (eitt upp á 10,5 meira að segja..(sem styður einnig skjalið..)) Loads af textum, sem einhverra hluta vegna eru næstum allir skrifaðir á formúlublöð.. óóótrúlega mikið af krassi og skrifuðum samræðum (greinilega in class, yfirleitt við Tótu eða Sóley) eeldgömul Undirtóna, Orðlaus og SÁND blöð! shit..
Fann líka einhver föt í poka neðst í fataskápnum mínum.. Þar á meðal þær tvær flíkur sem ég held ég geti sagt að séu einu flíkurnar sem ég hef farið einu sinni í og svo hætt að nota.. Míníííí pils sem ég kenni Sunnu um að ég hafi keypt (haha), hún hefur slæm áhrif .. ;-) Það er allavega það stutt að ég fór í því á Shockwave kvöld og var samt í stysta pilsinu.. Lenti í miklu áreiti það kvöld. Pilsið uppí hillu og sveimérþá, er ekki á leiðinni að verða dregið fram á næstunni.. Hitt er bolur sem er einhver svona semi dirty version af toppnum á brúðkaupstertu.. Nei hann er samt ekkert svo dirty. Bara spes.. Hann virkaði þó kvöldið sem ég fór í hann..good memories. Svo komst ég að því að buxur sem ég hef átt síðan ég var 16 eru loksins orðnar of litlar! Wooha! Gettin sum phat.. haha

Kalli allavega kitlaði mig um daginn.. og líka á blogginu sínu.

7 hlutir sem heilla mig við hitt kynið:

1. Augun.
2. Brosið.
3. Húmor.
4. Gáfur og samræðuhæfileikar.
5. Jafnoki.. hvorki undirlægja né frekja.
6. Stíll/smekkur (tónlistar,fata osfrv)
7. Að manneskjan heillist af mér til baka?

7 hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:

1. Klára stúdentinn.
2. Enjoy life.
3. Taka bílpróf? haha (líklega það síðasta sem ég geri áður en ég dey þá..öhö)
4. Verða sátt við sjálfa mig.
5. Finna einhvern sem er líka sáttur við mig.
6. Eignast börn.
7. Shit, þessi listi er rugl, ég veit ekki einu sinni hvað ég ætla að gera á morgun..

7 hlutir sem ég get gert:

1. Blikkað augunum ..
2. Sofið. And loads of it.
3. Fyrirgefið.
4. Hlustað á vandamál vina minna.
5. Skipulagt. (að fylgja skipulaginu eftir er annað mál hehe..)
6. Lesið&skrifað.
7. Hugsað. Og geri of mikið af því.

7 hlutir sem ég get ekki gert:

1. Látið fólk segja mér fyrir verkum.
2. Gert hluti sem stríða gegn skoðunum mínum.
3. Þagað á meðan vinir mínir are being shittalked.
4. Sungið.
5. Gleymt sumu.
6. Munað sumt.
7. Talað mikið.. (nema kannski ölvuð)

7 frægir karlmenn sem heilla mig:

1. Eminem
2. 2pac (RIP)
3. Mos Def
4. Nathan Mathers
5. Mekhi Phifer
6. Lil Zane
7. Fredro Starr

7 orð/orðasambönd sem ég segi oftast:

1. Já - Nei - Kannski
2. Góðan daginn, get ég aðstoðað?
3. Gjörðu svo vel
4. Ég
5. Chill - Chilling - Chilled
6. What's up?
7. Svei mér þá, já.. (sem svar við öllum asnalegu sögunum hans Kalla..haha djók)

7 sem ég ætla að kitla:

1. Brynja
2. Gunso
3. Jói
4. Ragga
5. Silvía
6. Soffía
7. Stebbi

Shit.. I still dont blame yall ef þið nennið þessu ekki..

Thursday, November 10, 2005

I'm not a regular bitch, I don't do regular shit

Okey sko.
Laugardagskvöldið var frekar fucked.. Byrjaði voða vel, Guðjón átti afmæli þannig að við vorum bara chillandi hérna í íbúðinni með slatta af fólki. Drukkum (verslunarmannahelgar-áfengið mitt haha) og spjölluðum. Svo endaði það þannig að ég, Gaui, Dagný, Anton og Guðrún sátum ein eftir. Umræðan snérist upp í mjög viðkvæmt atriði og allt fór í upplausn.. Við rifum okkur engu að síður uppúr því, cleaned up..fixuðum make-upið og skelltum okkur niður í bæ..
Og leiðin lá á Ölstofu Kormáks og Skjaldar, ég veit enn varla afhverju. En það var alveg hressandi. Ætluðum svo á Sólon en þá lenti ég í veseni með skilríkin mín.. a.k.a. þau voru tekin af mér !?!? Skilríki sem hefur aldrei (jú ok, einu sinni en það var ekkert gert úr því) verið svo mikið sem commentað á! Ég varð frekar annoyed en allt í góðu, klukkan var hvort sem orðin margt. Svo við fórum heim. Og ég týndi símanum mínum.. Svo það þýðir ekkert að hringja í mig á næstunni. Og ég fer örugglega ekki að djamma fyrr en í ágúst á næsta ári..afdrifaríkt kvöld huh?
En planið fyrir helgina fór allavega fyrir lítið! Vinnupartýinu var frestað, enginn dj Craze, enginn kvöldverður með stelpunum..
shiiiiii..

Vá ég sá brot úr þessum eskimo models þætti um daginn.. Það var verið að kenna fólki að mála sig. Það var meik, það var púður, sólarpúður, maskari, augnblýantur, 3 augnskuggar osfrv osfrv .. Svo var sagt "þetta var dagförðunin, næst förum við í kvöldförðun" .. er þetta dagförðun!? Ég mála mig ekki svona mikið fyrir djammið.. Ég einmitt átti gott moment um daginn áður en ég fór í vinnuna. Setti á mig andlitið og var að fara að stíga út þegar ég halla mér að speglinum til að þurka í burtu smá maskara á augnlokinu.. Lít á hitt augað til að gá hvort ég þarf að hreinsa eitthvað af því.. (ég er með svo löng augnhár að ég er alltaf með svarta línu fyrir neðan augabrúnirnar..bögg) en neih, enginn maskari þar svo ég bý mig undir að stíga út.. Svo fékk ég bara smá moment "hey wait a second" .. Lít aftur í spegilinn og bara ooops, haha ég gleymdi að setja mascara á annað augað..
Ok, of mikið tal um make up..

And now when I have got the guys attention again..

Shiiii, áðan var auglýsing á s1 um þessa ógeðsþætti.. OC, helvítans fermingargelgjusápuóperuvæl..bah. Allt í góðu með það nema það var þýðing á "junk in the trunk" ..þýðingin var "stórt nef" haha. Annars er síðasta vígið fallið, Jói er farinn að horfa á þetta líka.. haha.. its public now!

Humm. Lífið gengur sinn vanagang.. Not much to say. Mig langar að brjóta upp tilveruna. Eins og túristi sagði við mig í dag "if you work hard, you gotta party hard". I just think its not my thing anylonger..