the coldest human being that you've heard thus far

Tuesday, September 27, 2005

Don't you wanna know me? Be a friend of mine. I'll share some wisdom with you.

Jáh.. Hiphop karaoke um daginn, það var alveg cool. Þannig séð. Var stundum farið að minna óþægilega mikið á frekar lélegt japanskt karaoke á köflum en það voru líka góðir sprettir.. Mér leið samt svo vel, allt fólkið mitt þarna.. Meira að segja Sunna og Sóley komu að heimsækja mig :-)
Fór líka á Exodus djamm um daginn.. Frekar súr stemmning í gangi og stoppaði stutt. Sá showið hjá Össa (featuring Bent..eða Gústa), Gunna Maris, Helga, Sigga G, hinn Jas gaurinn.. & co og svo aðeins af Ramses ft. Jóel hoe.. hehe. Þetta var ágætt. Like the new 7 stuff og svo var gaman að sjá hina strákana spila, þeir voru hressir.

Hmmm.. Hef ekkert mikið að segja. Ég var að rifja upp góða, ölvaða tíma um daginn og velti því fyrir mér hvert öll þessi súperhressu, skemmtilegu fyllerí fóru.. Those were the days.. Núna er þetta alltaf bara einhver rútína.. Hafa sig til..Bjór..Taka Taxa..Niðríbæ..Bjór..Tala..Dansa..Bjór..Dansa..Tala..Bjór..Taxaröð..Heim.
Frekar óspennandi.
En þetta eru svona hápunktar af fylleríum sem ég man eftir. Dæmt á 50% ölvun (hehe) og 50% skemmtun.

5. Partý hjá Röggu.. Meeen was I drunk. Drakk of mikið, of hratt. Fær ekki marga punkta út á skemmtun en þeim mun meiri út á ölvun :-/ 99 bananas varð legendary eftir þetta kvöld..

4. Fyrsta fylleríið mitt.. Verslunarmannahelgin þegar ég varð 16. Margir punktar út á ölvun, nokkrir út á skemmtun; ekki fleiri þar sem ég man eiginlega ekkert eftir kvöldinu. Eyddi kvöldinu áður samt á rauðvínssúpi uppá tjaldstæði með Rósu og Andreu (spotlight&rokkland) sem var mjög nice hehe og skemmtileg minning.

3. Humarhátíð! Ég og Sóley fórum í smá roadtrip til Hafnar, mjög gaman. Hitti Elvar minn :-) og við 3 eyddum allri helginni saman. Elvar hefur örugglega verið umtalaður player eftir þessa helgi þar sem hann eyddi henni allri með okkur í tjaldi. Mæli ekki með brugginu hans Rúts sem ég varð hálf veik af.. Lúmskt sterkt og ekki ætlað til að drekka dry..sem ég gerði. Hápunktarnir voru án efa myglaða tjaldið, krókódíllinn og Sóley að bögga Jónsa í svörtum fötum ;-) ..og eitthvað fleira, man ekki..

2. Akureyri Verslunarmannahelgi í fyrra! Var reynar eiginlega bara drukkin fyrsta kvöldið (sem var það sísta í fjöri að mínu leiti) en þá var ég líka veeel í því.. Jói og einhver héldu á mér útí 10.11 eða some þar sem við keyptum batterí.. Það var chillað og ég ljóstraði víst upp leyndarmáli sem Sophie átti (haha) man reyndar ekkert eftir því, but still kinda funny.. Fékk samt alveg samviskubit sko en ég held hún hafi fyrirgefið mér.. Enn vinkonur amk! ;-) Svo var óskilamunatréð, slökkvitækið og hinn ódauðlegi frasi.. Viltu poka?

1. KEFLAVÍK haha.. Ég og Sóley fórum og heimsóttum Gylfa og Arnar, duttum í það í chillplacinu þeirra og vina þeirra (dont ask) urðum svo ofurölvi að annað eins hefur varla sést á götum Keflavíkur..og það er nokkuð. Þeir héldu nánast á okkur heim til Gylfa (við gátum varla labbað..Gylfi fékk harðsperrur af því að halda mér uppi haha) og chilluðum steiktu chilli þar, fórum aftur á placeið, tókum eitthvað einangrunarefni og plast og tróðum okkur öll inn í flugeldakompu sem var varla stærri en fataskápurinn minn (and that's SMALL) og gistum þar.. Kinda bum like huh. Hehehe. Fullt af smáatriðum sem ég man ekki/ætti ekkert að vera að minnast á ;-) ..hvað var aftur málið með drullupollinn samt?

Vá.. Going back memory lane við að skrifa þetta. Koma samt alveg mörg fleiri upp í hugann og endilega minnið mig á fleiri!
Shooters djammið mitt og Sunnu þar sem átti að lemja mig fyrir að reyna við gaur á barnum. (sem ég veit ekki enn þann dag í dag hver átti að vera..) Sunna: "hahahaha, HÚN?? Ertu viss um að það hafi ekki verið ég?" Þær héldu að Sunna væri að gera grín að þeim og skiptu um skoðun.. Og ætluðu að lemja hana. Good memories hehe. Fórum heim til frænda hans Dabba þar sem við chilluðum á aðfaranótt valentínusardags með hnetum, scrambled eggs, plastglasa-rósum (vá, margar minningar allt í einu) og ýmsu fleiru skemmtilegu..
Ég, Sóley, Arnar, Gylfi (og einhver fleiri?) að drekka í boði íslenskra verktaka..eða some.. Man ekki. Ólöglegt athæfi sem fær ekki fleiri orð hér hehe. Þessi 2 teljast reyndar varla sem fyllerí, bara góðar stundir :-)
Fyllerí í Keflavík þar sem ég datt á hausinn í blautu grasi, Gunni fór úr buxunum og labbaði um (á stuttbuxum samt hehe) Uuuuu og foreldrar hans Gunna héldu að hann væri kominn í dóp útaf mér ! Gee, thanks.
Shit, hausinn minn er kominn á 100 snúninga hraða af öllum þessum minningum. Ef ég hætti ekki núna þá verð ég að í alla nótt!
Hefur eflaust verið mjög leiðinlegt að lesa þetta ef þú varst ekki hluti af einhverjum af þessum minningum, vinsamlegst fyrirgefðu mér.
Peace peace..

Thursday, September 22, 2005

*klukk*

Megi Brynja brenna í helvíti! Eða frjósa in heaven, ég veit ekki.. Nei ég vona að hún hafi það bara gott. :-) Allavega þá 'klukkaði' hún mig. I could say 'fuck off' like I do so often.. En ég ætla að snúa þessu upp í fróðlegt, áhugavert, skemmtilegt og líflegt blogg með shocking staðreyndum og fróðleik sem mun nýtast ykkur út lífið..
Here we go..

1. Ég er í alvörunni ljóshærð (eða mjög ljós skol even) ..ekki segja neinum.

2. Ég á fallegasta og yndislegasta (og geðsjúkasta) hund í heimi sem heitir Perlam, er border collie og ég hitti reyndar ekki orðið nema tvisvar á ári eða svo :-/ , oh by the way!! Ég er svoooo stolt af henni, hún var að drepa mink fyrir nokkrum dögum! wooha! You go girl! :-) (for tha info þá er meira að segja erfitt fyrir þjálfaða minkahunda að drepa þá, nawmean?)

3. Éééég..hmm. Á 6 systkini (7 ef ein látin er talin með).

4. Ég er nammigrís af lífi og sál.. Eða matgæðingur skulum við segja og fyrirtaks kokkur! (þegar ég nenni því)

5. Ég hef verið bitin af köttum, hestum, kindum, börnum, gæsum&öndum, kálfi, gíraffa.. Hvað er málið!? Enginn hundur?

og ég klukka... BRYNJU, BRYNJU, BRYNJU, BRYNJU OG BRYNJU! HAH! 25 staðreyndir. hahahah

(backup plan if she fights back -> Sóley, Sunna, Svenni (Þrjú ess) Addi TT oog.. JÓIII! Eina sem hægt er að gera til að fá hann til að blogga..)

Sunday, September 18, 2005

I take you any way that I can have you..

Vvvá hvað ég er búin á því..
Ótrúlegt hvað það tekur á mann að vinna með erfiðu fólki. Var að vinna með manneskju sem er, jájá, frekar nýbyrjuð en goddamn it ég held hún hafi gleymt að skila inn vottorði upp á að vera þroskaheft..sorry.

Aaallavega þá er ég búin að vera að vinna alla helgina eeeen! fann mér tíma til að djamma. Datt í það í fyrsta skiptið síðan um verslunarmannahelgina..
Fór á Broadway og guhhhdamn it, það var party! Nenni ekki að tala um það en þetta var allavega niiiiice.
Vonandi verður jafn gaman næstu helgi, þá er Exodus djamm og dj's eitthvað fram eftir. Djöfull er ég luuuvin' hvað er mikið að gerast í hiphopinu! Búin að vera líka frekar dugleg að mæta á viðburði.
Hiphop Karaoke á fimmtudaginn líka. Það verður örugglega fun. Eða funny ég veit ekki. Býst alla vega við því að ég fari, það var nú skorað á mig. Bögg samt að ég er alltaf að vinna til 9 á fimmtudögum. butohwell.

Dang, ég er að horfa á emmy og nú er búið að eyðileggja americas next top model fyrir mér.. Eða well, ég er ekkert maad about it, finnst það bara skemmtilegt.
Damn ég fíla svona danska, ameríska, íslenska, whatever daga í hagkaup. Voru íslenskir dagar um daginn og - ég skil reyndar ekki afhverju - karmellu snúðar með rifnu súkkulaði eru vístsérstaklega íslenskir. Offita anyone? Ég reyndar keypti mér svoleiðis..feeeitan haha. Ég elska allt svona. Hvítar kökur á Subway - killer. Kanil skonsur úr Mosfells bakaríi - meeeeeen (með 2 cm lagi af smjöri) Snúðar, donuts..goddamnit!
Vá sorglegt..ég gæti bloggað lengurm um þetta. Segjum þetta gott !

Sunday, September 11, 2005

No pictures..!




Hahaha, I sure dont like them cameras!


Ogjá, kann ekki einhver að hafa þetta þannig að hver sem er geti commentað hjá mér? Mjög silly að fólk þurfi að fá sér blogger account til að commenta, mjög sætt að sumir geri það, en still mjög silly..

Monday, September 05, 2005

All I hear is raindrops falling on the rooftop..

Dang, eitthvað video music awards á mtv (endursýnt reyndar)

Var verið að veita Ludaaaa verðlaun fyrir besta rap videoið og Lil Kim og einhver dude kynntu það. Og hann var e-ð teasing her á þessu með að hún væri að fara í fangelsi.. n she was like "tíhíhí" og svo eru myndavélar út um allt og það er öðru hverju skipt í svona sekúndu á hina og þessa í salnum (you know how it goes) og það var sýnt á nokkra rappara og þeir voru allir með algjöran "oh, shut up bitch" svip. Haha

Oooogvá hvað þetta var flott.. Get ekki alveg lýst en þetta var allavega Biggie+sinfonía+snoop. Real nice.
Og núna er Fat Joe og einhverjir Puerto Rico gaurar.

Anyways. Don't have nuthin to say really.
..what nú er besta hiphop videoið.. Þar er fólk eins og Missy, Common, Snoop og Kanye. Hver er það sem skiptir þessu í flokka?

Hætti í Parlogis um daginn, það var svo sem ágætt. Byrjaði daginn eftir í fullri vinnu hjá Gunna, það er svo sem ágætt líka. Rugludallar sem vinna þarna. Eða well, ekki eins og það hafi verið minni vitleysingar á hinum staðnum..
Það var ekki gert neitt við mig sem betur fer þegar ég hætti, eða a.m.k ekkert eins og margir hafa lent í.. Það var svo mikið að gera að það var enginn tími fyrir hrekki. Reyndar límdu Steini og Siggi miða á bakið á mér með "potið í mig, ég er að hætta" eða álíka. Fyrir utan þá var samt bara einn sem potaði í mig. Þeir eru skrítnir. Steini og framlengingin hah

Hmm nú er Pharrel on stage, got sum crazy bling. Bahh, og hann kynnti Coldplay, af öllu.

En hjá Parlogis var alltaf verið að hrekkja einhvern.. Heiðrún áberandi duglegust, gerði einhvern tímann reikning á Gumma upp á einhverja 100 bæklinga um getnaðarvarnir og öruggt kynlíf. Svo hafa verið skreyttir, færðir til og plastaðir ótrúlega margir bílar. Og margt margt. Ég kom samt með nýtt þegar ég 'pimpaði' upp vagninn hans Gumma þegar hann var að koma úr sumarfríi. Svipurinn á honum var víst nokkuð skondinn..





Já hann er sætur vagninn, hann má eiga það. Bleiki borðinn fékk nú ekki að vera á nema í eins og tvo daga en fiðrildin og blómin eru enn á. Ástæðan fyrir því er nú meira sú að það er helvítans vesen að plokka þau af heldur en að hann vilji eitthvað hafa þetta..haha


Techno.is, Breakbeat.is, Hiphop.is & Broadway kynna:

Aðalsvið - Techno.is
ADAM BEYER
Exos
Tómas THX
Jonfri
Óli Ofur

Norðursalur - Breakbeat.is
Kalli
Lelli
Gunni Ewok

Austursalur - Hiphop.is
Bent & 7berg
DJ Paranoya
Danni Deluxe
DJ Mezzo + gestir


Á Broadway laugardaginn 17. september 2005

Koooma svo.