the coldest human being that you've heard thus far

Friday, April 18, 2008

http://www.nytimes.com/slideshow/2008/02/23/nyregion/022408-ESSAYS_index.html

Áhugavert. Nokkrar myndir af börnum af báðum kynjum. Það var farið inn á heimili fólks og þau fengin til að raða öllu því bláa sem strákurinn átti eða því bleika sem stelpan átti, hlið við hlið í herberginu. Frekar spes.

Annars er ég bara að setja þetta hérna til þess að tína ekki linknum..sorry.

Wednesday, January 02, 2008


Damnit, ég ætlaði að fara inn á netbankann minn en þá var tilkynning á forsíðunni:

Stórgreiðslukerfi Seðlabankans er lokað. Ekki er hægt að gera færslur yfir 10 milljónir króna.

...Svo ég verð víst bara að gera það síðar.


Tell me, dökkhærð eða ljóshærð?


Put your hands together for me being a ...stúdent!

Saturday, June 30, 2007

But it's that little glimpse of light that makes a diamond really shine

Hey yo..
Ég er ekkert svakalega dugleg í þessu. En ég ætla samt að halda því lifandi, eða kannski meira í coma.
Allt gott að frétta, ég er bara búin að vera að vinna. Búin að vera reyndar svolítið veik líka en það eru flestir búnir að vera það upp að einhverju marki..

Svaka djamm á prikinu í kvöld (vonandi), verður gaur að graffa í portinu og Benni að spila úti. Gotta love that.

Djöfull fer myspace í taugarnar á mér eða more like fólkið á myspace. Verstu týpurnar eru sennilega þær sem eru með zoolander frá 15 hliðum, gjarnan tekið í webcamera eða amk af þeim sjálfum og með quote efst sem segir t.d. "Barbie aint got shit on me" , "dont hate me cuz you aint me", "haters make me famous", "The princess of myspace" eða "beauty is in the heart of the beholder - not in the eyes of jealous bitch". Og svo eru þær alltaf með svona glitter myndir einhverjar..böööööö

Er ég eina manneskjan sem er alltaf að fá bréf frá gaurum eins og Ousmane Hamed eða Mu Usman?
FROM THE DESK OF MR OUSMANE HAMED
MANAGER AUDIT AND ACCOUNTING DEPARTMENT
BANK OF AFRICA OUGADOUDOU BURKINAFASO.
Og þau heita yfirleitt eitthvað eins og : URGENT AND CONFIDENTIAL

Yesh...

Friday, June 08, 2007

Bitch move over! Wear mo' ice than the bears in the polar

Yesh yesh yall ...
Sumarið er komið, eða samkvæmt dagatalinu að minnsta kosti. Ég verð í Parlogis í sumar, það er ágætt. Það verður samt eiginlega bara betra ef veðrið verður ekkert spes, þá er maður ekki pirraður yfir að hanga inni. Þá verð ég heldur ekki pirruð á því að Ragúel Páll líti út eins og hann sé með svertingja í ættartrénu sínu.. amk við hliðina á mér..
Skólinn gekk fínt, fékk bara áttur og níur. Yup, thats how I roll. Eða reyndar fyrir utan eitt fag sem ég var hvort sem er löngu fallin á .. mætingin var eitthvað strangari þar en annarstaðar. Sucks.
En þá á ég bara eftir næstu önn og þá er ég
B Ú I N !! haleluja

Ég er samt veik núna, ég skil ekki hvað er í gangi :/ Held ég hafi fengið sýkingu í hálsinn eða some, það er búið að fucka mér allri upp. Ekki gaman.
Dansandi nokkrum sinnum í viku, allt í gangi að æfa fyrir 17 júní. Þetta verður cool show, checkaðu á okkur. Ingólfstorg klukkan 4 (þangað til annað kemur í ljós.)

Ég ætlaði að setja inn myndir en það virkar ekki.. set þær inn þegar það virkar

Í lokin ætla ég að hvetja alla til að fylgjast með fyndnasta þætti á Íslandi þessa dagana; Leitin að næstu Pussy cat doll. Þar fjúka gullmolar eins og:

"I know in my heart that I am a pussycat doll"

Ein var að fá raddþjálfun og hún var gagnrýnd fyrir að vera með stæla í röddinni og feika hana og hún sagði seinna í viðtali að hún hefði verið að segja við sjálfa sig "I was thinking all the time; you have to be mature and just walk away from her" (nota bene þá á hún barn!)

Og sama gellan aftur: "The other girls have been calling me a diva. It hurts, you know because diva is not always a good thing"

djísús....

Thursday, May 03, 2007

I know that ain't nobody perfect, I give props to those who deserve it - and believe me y'all, he's worth it

Yooooo.. Whatsup?

Ég er í prófum og bara chillin inn á milli. Við sýndum á árshátíð um daginn og eftir hana tókum við freestyle session á bílastæði.. Það er ekkert eins og að dansa undir berum himni í góðu veðri. Ójá. Allavega, eitthvað af því var tekið upp og Brynja klippti það til..here ya go.

http://youtube.com/watch?v=-tuVizH7tK8

Annars verðum við í þessu öðru hverju núna á næstunni svo if you wanna dance, join us :) Og ég mæli auðvitað með dansnámskeiðunum hennar Booogie ef þú ert þannig gaur..gella.

En hey, ég heyri í þér seinna.

Wednesday, April 18, 2007

I was born a soul child, learned to walk on the bap-beat, Runnin' on a multi-track meat, but I'm no athlete

Nooooooooo! Ég banna að það kvikni aftur í Kebab! Pravda er mér nokk sama um..
Neinei, þetta er mad slæmt.Vona að þeir bjargi þessu!

Helgin var nokkuð góð. Laugardagurinn var mjög skemmtilegur, partýchill hjá Sophie því hún var að fara út daginn eftir og svo fórum við niður í bæ. Hverfis! Ég er farin að fara svolítið oft þangað lately en það er allgood. Tónlistin er dansvæn, svona oftast amk og ágætis dansgólf.
Ég lenti í verstu viðreynslu ever. Rúmlega þrítugur Austur-Evrópu gaur með tagl stendur við hliðina á mér og potar eitthvað í mig til að fá athygli. Ég lít á hann og þá heldur hann á bjór með annari hendinni við hliðina á klofinu á sér. Með hinni hendinni teiknar hann hring utan um bjórinn - og klofið á sér og segir, nákvæmlega eins og Borat myndi segja það .. "This is for you".

Hahahaha, hvað gerir maður í svona tilfellum? Ég missti bara andlitið og labbaði í burtu.. Gat ekki einu sinni svarað fyrir mig.
Shit.
Annars er allt cool. Ég er orðin háð því að gefa fuglunum á tjörninni svo ef þið eruð down, holla at me! Looove them muthafuckas.

Svo er hiphop jam á þriðjudaginn, be there. Ég ætla amk að kíkja. Bara 1000 gaur inn svo þetta er fly.

FUCK ég var að fatta það í dag að það eru ekki 2 vikur í prófin! Guhdamn, hvað á ég að gera.. læra? Prolly..

Thursday, April 12, 2007

I dont got time for your petty thinking mind


Yeah kids.. gangstas eru líka photoshoppaðir!


Anyway. Hey, fyrir ekki svo löngu síðan þá póstaði ég myndum af Jude Law í sundskýlu. Ég fattaði afhverju hann var í sömu sundskýlu (og afhverju hann hélt á einhverri kylfu í Laugardalslaug..). Myndin var samsett! Haha. Og þeir voru ekkert að hafa fyrir því að taka það fram í myndatextanum. Svo.. Kannski á hann fleiri en eitt sundoutfit! ;)

Annars er mest lítið að frétta. Angórakanínurnar vöktu mikla lukku hjá fólki.. Gott að vita að fleiri eru með skrítinn húmor.

Páskafríið er búið að vera voða nice, búin að vera að vinna svolítið en það er gott.. Just think about the money, ooh la la. Verð að vinna í Parlogis í sumar, það er fínt, stutt að fara í vinnuna. Tekur mig ekki 10 mínútur að rölta.

Being a big fan of hip hop fashion, þá er eitt sem fer svolítið í taugarnar á mér hér á Íslandi. Gellur geta farið í íní-míní pilsum, bolum flegnum niður að nafla og með bera handleggi og bert bak og það er "okey", jújú sumir gætu gefið í skyn að þetta væri full hoochie en það er svo sem ekkert weird við að sjá svona, we all used to it. Amk er vel hægt að komast með að vera annað hvort í stuttu pilsi eða mad litlum bol.
En ég held að ef ég færi í einhverjum velour hot pants niðrí bæ þá fengi ég ekki jafn góðar viðtökur. Eða ef ég færi í cropped jakka eða cropped bol með bert á milli. Whyyy? Það er ekkert verra. So, héðan í frá er mér skítsama! Ég rokka þetta án þess að hafa áhyggjur af viðbrögðunum (ég hef nú svo sem yfirleitt gert það). Dont worry, ég er ekkert að fara hálf ber niðrí bæ, ég vil samt alveg hafa möguleikann á því! ;)
Og ef einhver bitchast.. I wont fight, I wont argue - I'll just hit that bitch with a bottle!

Úff talandi um fight og argue. Sá einhver ykkar CSI þáttinn sem var um daginn? Um ríku krakkana sem klæddu sig í costumes og fóru og börðu fólk, just because.. þeim langaði til þess.

Þessi þróun er að verða að veruleika á Íslandi! Flest ofbeldisverk sem ég veit af undanfarið eru ekki framin af Keflvíkingum (surprise) eða krökkum úr Breiðholti or whatever. Það eru ríku krakkarnir af Nesinu! (Sorry þeir sem ég þekki af Nesinu, ég er ekki að segja að allir séu þannig!) En djóklaust. T.d. myndbandið sem var í Kastjósi í gær af stelpunni sem lenti í 30 manna hópi fyrir utan Keiluhöllina.. Stelpan sem var aðallega að berja hana og öskra á hana er í Való og eftir nokkur ár verður hún COPY af ákveðinni ljóshærðri stelpu úr Való sem ég hef hitt og er tík í gegn.. Laug því meðal annars að vinum sínum að hún hefði brotið glas í andlitinu á vini mínum, því það hefði verið svo töff! Gosh, get a life. Félagi minn var líka laminn af hópi af krökkum af Nesinu á gamlárskvöld af því að hann sagði þeim að hætta að skjóta flugeldum á sig.. What's going on! Rich kids thinking they're untouchable.. shit. Littla-Ameríka in tha house.

Æ ég veit ekki hvort þið skylduð þetta. Anyway.
Peace out!